Kolbeinn Finnsson hefur gengið til liðs við ráðgjafateymi Gott og gilt.  Kolbeinn kemur frá Festi hf þar sem hann starfaði sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs.  Hann býr yfir umfangsmikilli þekkingu og reynslu sem mun styrkja enn frekar þá ráðgjöf og þjónustu sem Gott og gilt býður.

Kolbeinn mun leggja megináherslu á ráðgjöf í mannauðsmálum, breytingastjórnun og  vinnuumhverfis- og öryggismálum starfsmanna.

Þá eru einnig talsverðar áskoranir framundan fyrir mörg fyrirtæki og snúa að innleiðingu á nýjum ESB sjálfbærnireglugerðum sem taka senn gildi.  Kolbeinn hefur reynslu til að miðla á því sviði.

Kolbeinn hefur víðtæka reynslu úr íslensku atvinnulífi og hefur setið í framkvæmdastjórn Festi og forvera þess í rúm 20 ár.

Gott og gilt hefur á að skipa öflugu teymi sérfræðinga sem veita m.a. ráðgjöf og þjónustu á sviði mannauðsstjórnunar, túlkunar á kjarasamningum og vinnulöggjöf, launagreiningum og undirbúningi fyrirtækja fyrir jafnlaunavottun.

Ráðgjafar Gott og gilt búa allir að langri reynslu og þekkingu á íslenskum vinnumarkaði og leggja áherslu á skilvirkar leiðir að árangri.