GOTT & GILT
Saman náum við betri árangri
Gott & gilt hefur á að skipa öflugu teymi sem getur komið að ráðgjöf og þjónustu á sviði mannauðsstjórnunar, stjórnunar launakostnaðar og túlkun á kjarasamningum og vinnulöggjöf. Þjónustan byggir á langri reynslu og þekkingu á íslenskum vinnumarkaði. Við leggjum áherslu á einfaldar og skilvirkar leiðir sem stuðla að betri rekstrarárangri.
GOTT
& GILT
Fagleg ráðgjöf
og skilvirkra leiða fyrir þitt fyrirtæki eða stofnun.
Hildur Björg Hannesdóttir
Yfir 20 ára reynsla af mótun og viðhaldi stjórnunarkerfa fyrir gæði, öryggi og vernd. Sem öryggis- og gæðastjóri Isavia ANS bar hún ábyrgð á innleiðingu og viðhaldi stjórnunarkerfis fyrir starfsleyfi flugleiðsögu og vottorði fyrirtækis vegna þjálfunar flugumferðarstjóra. Sérsvið í ráðgjöf er umsjón, þjálfun og fræðsla í öllu sem varðar stjórnunarkerfi s.s. úttektir, áhættumat, hættustjórnun, atvikatilkynningar, rótargreiningu, þjálfunaráætlanir, hæfniáætlanir, viðbragðsáætlanir og breytingastjórnun. Mikil reynsla í að greina og vinna með staðla, evrópskar og íslenskar reglugerðir og lög m.a. fyrir GDPR, NIS, ERM, upplýsingaöryggi, raforkuvirki, flugleiðsögu og flugvelli.
Kristín Þóra Harðardóttir
Lögfræðingur með meistaragráðu frá Háskóla Íslands og BA gráðu í heimspeki. Kristín Þóra sinnir verkefnum fyrir Gott og gilt sem sjálfstæður ráðgjafi um vinnurétt og túlkun kjarasamninga en hún hefur langa reynslu af ráðgjöf um vinnurétt bæði á hinum almenna og opinbera vinnumarkaði.
Gísli Á. Gíslason
Sálfræðingur frá Háskóla Íslands og með Masterspróf í taugasálfræði frá Rice University. Hann hefur unnið við launarannsóknir og greiningar síðustu 15 ár, þar á meðal við launakönnun Intellecta. Einnig hefur hann hannað árangurslaunakerfi, unnið að uppbyggingu launakerfa fyrirtæka, gert mat á launum starfsmanna og stjórnarmanna og framkvæmt aðrar greiningar á launum innan fyrirtækja og launamarkaðnum í heild.
Sigurður Ólafsson
Viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og lauk MBA prófi í rekstrarhagfræði frá Rotterdam School of Management. Sigurður hefur víðtæka reynslu af starfsmannamálum bæði frá Icelandair, Origo, VÍS og Isavia, auk stjórnunarreynslu sem framkvæmdastjóri Calidris ehf og Varðar Íslandstryggingar hf. Sigurður situr í stjórn lífeyrissjóðs og þriggja fyrirtækja.
- June 19, 2024
HILDUR B HANNESDÓTTIR KEMUR TIL GOTT OG GILT.
Hildur B Hannesdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafateymi Gott og gilt. Hildur kemur til Gott og gilt frá Flugleiðsögufyrirtækinu...
- November 28, 2023
KOLBEINN FINNSSON KEMUR TIL GOTT OG GILT.
Kolbeinn Finnsson hefur gengið til liðs við ráðgjafateymi Gott og gilt. Kolbeinn kemur frá Festi hf þar sem hann starfaði...
- March 6, 2023
MINNI VINNA OG MEIRA FRÍ – MARKMIÐIÐ MEÐ STYTTRI VINNUVIKU?
Í síðustu kjarasamningum var samið um styttingu vinnuvikunnar bæði á almenna og opinbera vinnumarkaðnum. Leiðirnar sem samið var um eru...
Hafðu Samband
Það gæti sparað þér mikla vinnu